Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga 22.maí

Nítján nemendur útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga við hátíðlega athöfn í þann 22. maí. Þetta var 42. útskrift skólans frá stofnun hans árið 2004 og hafa alls 640 nemendur lokið námi frá skólanum á þeim tíma. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari brautskráði nemendur. Á myndinni má sjá útskriftarhópinn ásamt Agnesi Helgu Sigurðardóttur, námsráðgjafa og Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara. Hér má lesa ræðu skólameistara.