Samstarf Fjölbrautaskóla Snæfellinga og grunnskóla á Snæfellsnesi

Samstarf Fjölbrautaskóla Snæfellinga og grunnskóla á Snæfellsnesi

Meðal meginatriða núverandi menntastefnu er aukið svigrúm, sveigjanleiki og samfella á milli skólastiga og innan hvers skólastigs. Helstu markmið samstarfs og tengsla milli skólastiga eru að skapa samfellu í námi nemenda, koma til móts við þarfir þeirra og stuðla að markvissari uppbyggingu námsins.

Grunnskólar á Snæfellsnesi eiga í góðu samstarfi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Í samstarfinu felst meðal annars ábyrgð á upplýsingagjöf milli skólanna, til nemenda og foreldra um nám á framhaldsskólastigi og hvernig samstarfinu er háttað.

Skólastjórnendur grunnskólanna og FSN funda reglulega og skipuleggja samstarfi þeirra á milli.  Nemendur grunnskólanna fá heimsókn frá náms- og starfsráðgjafa grunn- og framhaldsskóla á hverjum vetri, auk heimsóknar frá fyrrum nemendum síns skóla sem nú stunda nám við FSN. Nemendum og forráðamönnum þeirra verður boðið á opið hús í FSN, auk þess sem forráðamönnum verður boðið á foreldrafund.

Nemendur í 10. bekk grunnskólanna á Snæfellsnesi og Patreksfirði stendur til boða að taka þátt í framhaldsskólahermi á hverju vori. Nemendur fá að upplifa einn dag í framhaldsskóla þar sem þeir sækja kennslustundir og vinna verkefni undir leiðsögn kennara FSN. 

Hér má nálgast verkferla við útskrift nemenda úr grunnskóla og inngöngu í framhaldsskóla.