Inntökuskilyrði

Stúdentsbrautir

Til þess að hefja nám á stúdentsbrautum þarf umsækjandi að hafa lokið grunnskóla með einkunnina B, B+ eða A í ensku, íslensku og stærðfræði.

Umsókn nemenda með D eða stjörnumerkta einkunn í einni af kjarnagreinunum ensku, íslensku eða stærðfræði verður skoðuð sérstaklega.  

Framhaldsskólabrautir

Umsækjandi sem lokið hefur grunnskóla með einkunnina C eða C+ í tveimur eða þremur af kjarnagreinunum ensku, íslensku eða stærðfræði innritast á framhaldsskólabraut 2.

Starfsbraut

Sérnámsbraut (starfsbraut) er ætluð nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla og hafa fengið fötlunargreiningu.