Einingar

Haustið 2015 tók gildi nýr einingamælikvarði fyrir alla áfanga og þar með nám á hverri braut. Almenn námskrá framhaldsskóla kveður á um að stúdentspróf skuli vera á bilinu 200 – 240 framhaldsskólaeiningar en 60 einingar eru samsvarandi einu ári miðað við hefðbundinn námshraða. Að baki hverri framhaldsskólaeiningu eru 18-24 klukkutímar í tímasókn og vinnu fyrir nemandann.  Það þýðir að fimm eininga áfangi er á bilinu  til 90 - 120 klst vinna fyrir nemandann.

Frá hausti 2014 innritast nýnemar úr grunnskóla á stúdentsbrautir sem lýkur með 200 einingum.

Síðast uppfært: 14. nóvember 2018