Þróun námsmats við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Í greininni hér fyrir neðan fjallar Berglind Axelsdóttir um þróun námsmats í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þar er sérstaklega fjallað um könnun á námsmati meðal kennara skólans sem framkvæmd var í mars 2009 og námsmatskönnun sem gerð var haustið 2006 við sama skóla. Einnig verður fjallað um niðurstöður úr rýnihópi nemenda. Berglind var íslenskukennari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga og var rannsóknin unnin þar. Rannsóknin var eitt af verkefnum námskeiðsins Að vanda til námsmats sem fyrrnefnd sat veturinn 2008–2009.

Þróun námsmats við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.