Hjúkrunarfræðingur í FSN

 Viktoría Sif Viðarsdóttir  hjúkrunarfræðingur, starfar hér í FSN. Hún sér um skólahjúkrun fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Hún er með viðveru upp í Tjörn:

  • Fyrsta fimmtudag í mánuði  frá kl. 9:00 – 14:00.
  • Þriðja fimmtudag í mánuði frá kl. 9:00-14:00
  • Tímapantanir eru á netfanginu viktoria.s.vidarsdottir@hve.is

 

Skólajúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

  • Meiðsli, sjúkdóma og verki
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál
  • Svefnvandamál
  • Vottorð
  • Áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu
  • Kynheilbrigði
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd
  • Mataræði og hreyfing

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu