Þriðjudaginn 13. október hélt nemendafélag FSN árlega West side keppni milli FSN, FVA og MB í íþróttahúsinu í Snæfellsbæ. Þessi skemmtilega keppni felur í sér að skólarnir keppa sín á milli í nokkrum íþróttagreinum og enda svo á spurningarkeppni í anda Gettu betur. Að lokinni keppni var haldin sameiginlegur dansleikur í Félagsheimilinu Klifi. Viðburðurinn tókst í alla staði mjög vel og var mikil ánægja bæði á keppninni og á ballinu sjálfu. Sigurvegarar annað árið í röð voru keppendur FVA og óskum þeim til innilega til hamingju. Við erum ótrúlega stolt af öllu okkar fólki sem skipulagði og kom að viðburðinum.
Ljósmyndari: Bence Petö.