Útskriftarhátíð 29.maí klukkan 14:00

Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk.
Á morgun, föstudaginn 29.maí klukkan 14:00 fer fram brautskráning á sal skólans. Vegna fjöldatakmarkana getur hver útskriftarnemi aðeins boðið með sér þremur gestum að vera viðstaddir athöfnina. Á þessari útskriftarhátíð verða 26 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn en athöfninni verður streymt á fésbókarsíðu skólans. Dagskráin er hefðbundin þrátt fyrir að aðstæður séu óhefðbundnar. Skólameistari útskrifar nemendur og flytur ávarp. Útskriftarnemandi og eldri nemandi flytja ávörp og einnig mun starfsmaður flytja kveðjuræðu fyrir hönd starfsfólks. Við munum veita viðurkenningar og hlýða á tónlistaratriði og að lokum er boðið upp á kaffiveitingar í matsal skólans.