23.maí var útskrifað í fertugasta skiptið frá FSN

Gísli Sigurbjörnsson var með hæstu einkunn á stúdentsprófi
Gísli Sigurbjörnsson var með hæstu einkunn á stúdentsprófi

Útskrifað var frá FSN í 40.skiptið 23.maí og voru 14 nemendur útskrifaðir frá skólanum. Einn nemandi lauk námi á félags- og hugvísindabraut, tveir nemendur luku námi á náttúru og raunvísindabraut, fjórir  nemendur luku námi á opinni braut ,tveir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs og fimm nemendur luku námi af nýsköpunar- og frumkvöðlabraut.  Nú hafa 618 nemendur verið útskrifðair frá fyrstu útskriftinni sem var í desember 2005. Gísli Sigurbjörnsson hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi.