Tilkynning frá FSN varðandi viðskiptaskilmála 1.1.2023

Þann 1. janúar  2023 taka gildi almennir viðskiptaskilamálar ríkisins um kaup á vöru og þjónustu. Þar koma meðal annars fram eftirfarandi atriði: 

·       Viðskiptaskilmálar ríkisins gilda við kaup ríkisaðila á vöru og þjónustu nema um annað hafi verið samið sérstaklega.

·       Reikning til ríkisaðila skal afhenda með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlun. Reikningi á pappír verður hafnað. 

·       Gjaldfrestur er að lágmarki 25 dagar frá afhendingardegi reiknings hjá skeytamiðlara.  

·       Birgi er heimilt að nota greiðsluseðil til stýringar greiðslu sér til hagræðis. Tryggja verður að ákvæði um afhendingu  gjaldfrest og seðilgjöld séu virt ef greiðsluseðill er notaður.

Að öðrum kosti verður samþykktur reikningur greiddur með millifærslu 25 dögum eftir afhendingardag hjá skeytamiðlara.  

 

 Meðfylgjandi eru allar upplýsingar um viðskiptaskilamála ríkisins við kaup á vöru og þjónustu.  

Nánari upplýsingar um rafræna reikninga og leiðbeiningar til birgja er að finna á vef Fjársýslu ríkisins, http://www.fjs.is/fraedsla-og-verklagsreglur/rafraenir-reikningar/

 

Athugið að á vef Fjársýslunnar er linkur á Skúffuna sem er tól til að mynda rafrænan reikning til ríkisstofnana.

Rafrænn reikningur (skuffan.is)