FSN átti flottan fulltrúa í U20 landsliði kvenna í blaki á Evrópumóti Smáþjóða í San Marínó dagana 1.- 5. október 2026. Mótið var jafnframt undankeppni Evrópumótsins 2027 (CEV).
U20 landslið kvenna í blaki náði frábærum árangri þegar liðið sigraði SCA U20 mótið í San Marínó og tryggði sér þar með sæti á lokamóti EM U20, sem fer fram á Ítalíu og Möltu næsta sumar.
Ísland tryggði sér sigur á SCAU20 kvenna með 3–2 sigri á San Marino í úrslitaleik. Íslenska liðið vann fyrstu tvær hrinurnar en San Marino jafnaði metin áður en Ísland vann afgerandi sigur í oddahrinu. Hrinutölur voru 31–29, 25–20, 20–25, 20–25 og 15–7.
Við í FSN erum sérstaklega stolt af Alexöndru Björg Andradóttur nemanda í FSN, sem er hluti af þessum frábæra hópi.
