Styrktarbingó fyrir Lilju Dögg

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga ætlar að halda bingó til styrktar Lilju Dögg sem er nemandi hér í FSN. Lilja Dögg greindist með bráðahvítblæði fyrir jólin. Krakkarnir eru búnir að vera á fullu að undirbúa og fá góða styrki og hvetjum við alla að mæta á miðvikudaginn 25.febrúar kl. 18:00 og taka þátt.