Starfsbraut FSN fær gjöf

Á útskriftarhátíð skólans var starfsbraut skólans gefin höfðingleg gjöf. Hjónin Runólfur Guðmundsson og Edda Kristjánsdóttir færðu starfsbrautinni að gjöf  fimmhundruð þúsund krónur. Við erum mjög þakklát þeim hjónum og þessi gjöf mun verða nýtt til að bæta aðstöðu nemenda á starfsbraut FSN.