Stafræni háskóladagurinn

Á Stafræna háskóladeginum laugardaginn 26.febrúar 2022 milli klukkan 12 og 15 er hægt að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á Íslandi.   Nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér spennandi háskólanám. 

Á vefsíðunni https://www.haskoladagurinn.is/ er hægt að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum. Einnig er hægt að komast í beint samband við fulltrúa frá öllum námsleiðum í grunnnámi háskólanna.