Embla Rós keppandi FSN í Söngkeppni framhaldsskólanna 2026
Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram laugardaginn 11. apríl kl 20:45 í Háskólabíó.
Embla Rós Elvarsdóttir er nemandi á Nýsköpunar- og frumkvöðlabraut. Hún syngur fyrir hönd skólans lagið „Í hjarta mér"
Dómarar keppninnar í ár eru Bríet, Helgi Björns og Þormóður Eiríksson.
Ágúst Þór Brynjarsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir eru kynnar keppninnar en ásamt keppendum munu Skandall, sigurvegarar keppninnar í fyrra, Páll Óskar og Aron Can koma fram.
Dómarar ráða ekki einir úrslitum því símakosning hefur vægi á móti atkvæðum dómnefndar.
Símanúmer keppanda Fjölbrautaskóla Snæfellinga er 900-9108.
Miðasala er hafin og inn á
tix.is og verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Áfram Emla Rós!