Skólahjúkrunarfræðingur í FSN

Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að nú hafa nemendur FSN möguleika á því að fá viðtal við hjúkrunarfræðing. HVE hefur samið við Guðríði Ringsted hjúkrunarfræðing sem verður hér í 12,5% starfi hjá FSN og Menntaskóla Borgarfjarðar. Þetta er vissulega ekki hátt starfshlutfall en er vonandi bara byrjunin á enn frekara samstarfi við HVE vegna skólahjúkrunar.

Upplýsingar um hvernig nemendur geta pantað sér tíma hjá skólahjúkrunarfræðing munu vera settar inn á heimsíðuna