Skólabyrjun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Nýnemar haustið 2026
Nýnemar haustið 2026

Það var fallegt veður í dag á fyrsta kennsludegi haustannar. Nemendur mættu í skólasetningu klukkan 8:30. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari fór yfir helstu nýjungar og áhersluatriði í skólastarfinu og sagði síðan  skólann settan fyrir skólaárið 2026-2027. Að lokinni skólastetningu hófst kennslan samkvæmt stundaskrá. Við förum inn í skólaárið, full af bjartsýni og tilhlökkunar. Nú eru skráðir 212 nemendur en innritun er ekki lokið. Við eigum einn einhver pláss í sumum áföngum.

Í gær var nýnemadagur og tókst hann vel. Hingað komu nemendur sem útskrifuðust úr tíunda bekk í vor. Agnes námsráðgjafi tók á móti þeim og kynnti þeim skólann og fyrirkomulag námsins, því það er vissulega aðeins öðruvísi að vera í framhaldsskóla heldur en að vera í grunnskóla. Breytingarnar eru samt ekki mjög miklar. Það er krafist aðeins meira frumkvæðis af nemendum og það er krafist aðeins meira sjálfstæðis af þeim og við gefum þeim pláss fyrir nýsköpun. Frumkvæði, sjálfstæði og nýsköpun eru einmitt einkunnarorð FSN, og. við viljum ýta sérstaklega undir þessa þrjá þætti hjá nemendum okkar.Ein af þeim breytingum sem nemendur koma til með að finna fyrir þetta skólaár er að við höfum hætt að nota MOODLE sem kennsluumsjónarkerfi og notum TEAMS fyrir kennslu, námsefni og samskipti. Síðastliðið skólaár fórum við að nota forritið INSPERAen það  Inspera er stafrænt prófakerfi sem er notað fyrir rafræn próf.