Skíðaferð til Akureyrar

Vel heppnuð skíðaferð FSN að baki

 

Nemendur í skíða áfanganum ÍÞRÓ1SK02 skelltu sér í Hlíðarfjall á Akureyri dagana 2-4 mars 2026. Alls voru 31 nemandi og tveir skíða- og brettakennarar með í för. Allir nemendur tóku vel á því og renndu sér í fjallinu, hvort sem þau voru byrjendur eða lengra komnir.

Nemendur öðluðust færni í að pakka fyrir skíðaferð, klæða sig eftir veðri og stunda krefjandi íþrótt að vetri til. Hópurinn var samheldinn og voru nemendur duglegir að styðja hvert annað og læra hvert af öðru. Á snjóbretti og á skíðum eins og lífinu öllu gildir það að þegar við dettum þá þarf að standa upp aftur og reyna aftur og aftur og aftur.

Stundum eru bestu kennslustundirnar ekki í kennslustofunni heldur úti í náttúrunni, í fjallinu, þar sem við prófum okkur áfram, hjálpumst að og njótum augnabliksins sem er svo sannarlega lýsandi fyrir þessa frábæru ferð.

 

Takk kærlega fyrir okkur

Guðrún Jóna Jósepsdóttir, fjármálastjóri og Gísli Pálsson íþróttakennari. 

Hér má sjá myndir af ferðinni.