19.10.2025
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Segðu það upphátt
-
Píeta samtökin hafa verið á ferðalagi um landið þar sem Tómas Daði Bessason sálfræðingur hjá Píeta og Birna Rún Eiríksdóttir leikkona, heimsækja framhaldsskóla og ræða opinskátt um andlega líðan og mikilvægi þess að við tölum saman um hlutina. Verkefnið ber heitið Segðu það upphátt! Í fræðslunni er lögð áhersla á vonina, lausnir og bjargráð þar sem rætt verður um líðan og tilfinningar á léttum og uppbyggilegum nótum.
-
Verkefnið er fjármagnað af landssöfnun
Lions á Íslandi sem fór fram fyrr á árinu. Lionsfélagar um allt land seldu
Rauðu fjöðrina til styrktar verkefninu Segðu það upphátt! Fræðsla um sjálfsvígsforvarnir,
-
Að þekkja áhættuþætti og merki þeirra
-
Að vita hvar hjálp er að fá
-
Að þekkja gagnleg bjargráð fyrir ungt fólk
Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og vitund ungs fólks á sjálfsvígsvandanum og þekkja þau úrræði sem eru í boði. Einnig er markmiðið að draga úr skömminni sem getur fylgt sjálfsvígshugsunum og að það sé í lagi að tala um hlutina. Besta forvörnin er að segja frá.

.