Rannsókn á blóðsykri

Nemendur í næringarfræði gerðu verklega rannsókn á blóðsykri. Þeir mældu blóðsykur fyrir og eftir neyslu mismunandi matvæla og drykkja, þar á meðal brauðs, sælgætis, snakks og gosdrykkja. Mælingar voru teknar á 15 mínútna fresti í 90 mínútur.

Að mælingunum loknum vinna nemendur úr niðurstöðunum með töflum og línuritum. Þeir bera saman áhrif matvælanna og tengja niðurstöðurnar við fræðilega þekkingu sína á kolvetnum, meltingu og hlutverki insúlíns. Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að æfa sig í að safna og vinna með gögn og draga ályktanir af eigin athugunum.

Blóðsykur