Sigríður Guðbjörg Arnardóttir

Sigríður Guðbjörg Arnardóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga og mun hefja starf sem aðstoðarskólameistari 1.ágúst.
Sigríður Guðbjörg er með B.A.-próf í þroskaþjálfafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, viðbótardiplóma í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og M.Ed.-próf í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi á leik, grunn- og framhaldsskólastigi.
Sigríður hefur starfað sem deildarstjóri starfsbrautar og kennari í félagsgreinum hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá árinu 2008. Áður starfaði hún sem þroskaþjálfi við Grunnskóla Grundarfjarðarbæjar (2006–2008). Þar áður gegndi hún m.a. starfi deildarstjóra starfsbrautar við Fjölbrautaskóla Snæfellinga (2004–2006), starfaði sem þroskaþjálfi við Leikskólann Sólvelli í Grundarfirði (2003–2004) og var forstöðumaður skammtímavistunar að Gufuskálum hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi (2003–2005). Sigríður hefur gegnum störf sín hjá Fjölbrautaskóla Snæfelling öðlast góða reynslu og þekkingu á stefnumótun menntastofnana. .