Perlað af Kraftir í tilefni 40 ára afmæli Beggu
Berglind Rósa Jósepsdóttir hefði fagnað 40 ára afmæli 28. janúar síðastliðinn hefði hún lifað, en hún dó í kjölfar baráttu við krabbamein árið 2019. Í tilefni að afmælinu buðu aðstandendur Berglindar, í samstarfi við Kraft og Krabbameinsfélag Snæfellsness, til notalegrar samverustundar í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þar var perlað af krafti nýjustu „Lífið er núna“ armböndin sem fóru svo í sölu. Mæting á viðburðinn var framar öllum vonum og kláraðist allt efni sem nota átti í framleiðsluna. Alls voru perluð rúmlega 219 armbönd.
Hér má sjá nokkrar myndir sem Tómas Freyr Kristjánsson tók í tilefni dagsins
Perlað af Krafti