Alma Dís Kjartansdóttir tekur við útskriftarskírteini
frá Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara í maí 2026.
Ljósmyndari: Tómas Freyr Kristjánsson
Tuttugu og fimm tóku við Menntaverðlaunum Háskóla Íslands í vor
Meðal handhafa Menntaverðlauna Háskóla Íslands 2026 var Alma Dís Kjartansdóttir en hún útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í vor. Við í FSN óskum Ölmu Dís innilega til hamingju og óskum henni bjartrar framtíðar.
Þetta var í níunda sinn sem verðlaunin voru veitt en með þeim vill Háskóli Íslands verðlauna framhaldskólanema sem hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður.
Hver framhaldsskóli gat tilnefnt nemanda til Menntaverðlaunanna og að þessu sinni bárust Háskóla Íslands 25 tilnefningar. Verðlaunin voru gjafabréf í Bóksölu stúdenta að upphæð 20 þúsund krónur, viðurkenningarskjal frá rektor Háskóla Íslands og styrkur sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið í Háskóla Íslands, kjósi verðlaunahafinn að hefja nám þar.