Mánudaginn 17. ágúst er nýnemadagur. Þenna dag fá nýnemar kynningu á skólanum og náminu sem þar fer fram. Rútur fara frá Snæfellsbæ og Stykkishólmi og þurfa nemendur ekki að borga fyrir þessa fyrstu ferð í skólann. Dagskrá nýnemadags lýkur með veitingum í hádeginu í boði skólans. Þriðjudaginn 18.ágúst er skólasetning klukkan 8:30 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá aö henni lokinni. Dagskrá nýnemadags er þessi:
Nýnemadagur: Umsjón Agnes Helga námsráðgjafi og umsjónarkennarar nýnema.
Dagskrá:
10:00 mæting
10:15 upprifjun á kynningu sem nemendur fengu í 10 bekk.
10:45 innskráning í Office, innu, Moodle og Teams.
11:45 hagnýt atriði varðandi geymslu á verkefnum og gögnum í skýi og farið yfir skólareglur
12:00 hádegismatur í boði FSN
12:30 rútur fara heim
Við hlökkum til að hitta þennan nýja hóp nemenda og fá að kynnast þeim betur.