Nýnemadagur

Nýnemar mæta á sérstakan kynningardag, nýnemadag, miðvikudaginn 17. ágúst kl. 10:00. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Nemendur eru beðnir um að vera búnir að ná sér í íslykil á www.island.is/islykill. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. 

Skólaakstur á nýnemadegi:

Brottför:

Frá Stykkishólmi kl.9:30 (Íþróttamiðstöð)

Frá Hellisandi kl.9:30 (N1)

Frá Rifi  kl. 9:33

Frá Ólafsvík kl.9:40 (Íþróttahús)

Frá FSN  að loknum nýnemadegi kl.13:00

Nemendur í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta í deildina á Patreksfirði kl. 10:00.

 

Foreldrar nýnema verða boðaðir á sérstakan kynningardag 31. ágúst. Tímasetning verður auglýst síðar. Endilega fylgið með á heimasíðu skólans www.fsn.is og fésbókarsíðu FSN.