Mín framtíð

Mín framtíð í Laugardagshöll dagana 14. – 16. mars 2019. 

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er með bás  á framhaldsskólakynningunni í Laugardagshöll og kynnir skólann og námsframboð. Nemendur og starfsmenn sjá um kynninguna og hafa þeir staðið sig með prýði.

Fræðsluaðilar kynna fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi og fram fer keppni á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Boðið er upp á ýmsa viðburði, kynningar og ekki síst að prófa, fikta, snerta og smakka. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að kynna sér allt nám á framhaldsskólastigi á einum stað.

33 framhaldsskólar alls staðar af landinu kynna fjölbreytt námsframboð sitt. Nemendur, kennarar og náms- og starfsráðgjafar munu svara spurningum um námsframboð, félagslíf, inntökuskilyrði og annað sem gestir vilja vita um nám og störf.

30 iðn-, verk- og tæknigreinar taka þátt í Mín framtíð 2019. Flestar greinarnar eru með keppendur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Unga fólkið sýnir rétt handbrögð og tækni sinnar greinar um leið og það tekst á við krefjandi verkefni og spennuna sem fylgir því að keppa. Sigurvegarar fá margir hverjir tækifæri til að keppa í EuroSkills að ári.

Einnig verða á svæðinu: BMX BRÓS, FabLab Reykjavík, Fagkonur, Félag náms- og starfsráðgjafa, Iðan fræðslusetur, Heimavist MA og VMA, Iðnú, Kvasir- samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, Rafmennt, Rannís, Samband Íslenskra framhaldsskólanema, Team Spark og Verksmiðjan RÚV.

Það verður mikið líf og fjör í Laugardalshöllinni þessa þrjá daga þar sem um 7000 grunnskólanemendur alls staðar af landinu munu koma fyrstu tvo dagana til að skoða, prófa og fræðast.

Laugardagurinn kl. 10:00 – 16:00 er Fjölskyldudagur. Fjölskyldur eru sérstaklega velkomnar til að koma og fræðast, upplifa og skemmta sér.

Í boði verður m.a. að helluleggja, klippa, flétta, krulla eða slétta hár, teikna grafík í sýndarveruleika, splæsa net, fara í ratleik, fara á ýmis örnámskeið, mæla blóðþrýsting, planta fræjum, þrívíddarprentun, smíða, prófa vélmenni, bora, sauma á iðnaðarsaumavél, leysa þrautir og fá verðlaun, sjá mjaltir og rúningu og að taka þátt í að útbúa lengstu blómaskreytingu sem gerð hefur verið á Íslandi.