Kynningar á lokaverkefnum

Yfirlitsmynd af FSN
Yfirlitsmynd af FSN

Þriðjudaginn 12.desember kynna útskriftarefni lokaverkefni sín. Kynningin fer fram í matsal skólans klukkan 11:25, Lokaverkefni verða kynnt í málstofu sem er opin fyrir nærsamfélagið. Lokaverkefnisáfanginn er unninn á síðasta námsári. Nemandur velja sér viðfangsefni og skipuleggja í samráði við leiðbeinanda. Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt, s.s. í formi ritgerðar, vefsíðu, heimildamyndar, sýningar, tímaritsgreinar, bókagerðar, portfolio, útvarpsþáttar eða rannsóknarskýrslu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð. Gert er ráð fyrir að nemandi velji efni tengt sinni braut þótt mögulegt sé að víkja frá þeirri reglu. Afrakstur allra lokaverkefna er kynntur í annarlok og birtur á heimasíðu skólans.  Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi. Miðað er við að nemendur vinni lokaáfangann sem einstaklingsverkefni þótt þeir geti óskað eftir að gera það tveir og tveir saman. Hafi nemendur hug á að vinna í fjölmennari hópum þarf að rökstyðja það sérstaklega og lýsa fyrirfram hlutverki og vinnuframlagi hvers og eins.