Kennsla á TEAMS 5.-7.janúar

Skólabyrjun á vorönn 2022

Kæru nemendur og starfsfólk FSN

Veðurspá fyrir miðvikudag og fimmtudag er mjög slæm. Eftir samráð við rekstraraðila skólabíla og húsvörð FSN tókum við ákvörðun um að það væri skynsamlegt að fella niður skólaakstur þessa fyrstu viku vorannar. Framhaldsdeildin á Patreksfirði verður opin þessa daga.

Skólahald verður því á TEAMS þessa viku og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 5.janúar og fimmtudaginn 6.janúar. Föstudaginn 7.janúar eru verkefnatímar á TEAMS.

Látum þessa byrjun ekki slá okkur út af laginu heldur byrjum námið á vorönn með krafti. Mig langar að benda ykkur á instagram síðu hjá henni Agnesi: https://www.instagram.com/namsradgjof_fsn/

Vonandi leyfir veðrið okkur að mæta í skólann á mánudag 10.janúar, hlakka til að hitta ykkur öll.

Kveðja

Hrafnhildur, skólameistari