Áslaug, Hermann og Steinunn fyrir utan skólann Zespół Szkół STO na Bemowie
Dagana 12.–16. apríl 2026 fóru Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir, Áslaug Sigvaldadóttir og Hermann Hermannsson, kennarar við Fjölbrautaskóla Snæfellinga, í skiptinám til Varsjár í Póllandi á vegum Erasmus+.
Þau dvöldu hjá skólanum Zespół Szkół STO na Bemowie (Fésbókarsíða skólans) sem er óhefðbundinn framhaldsskóli þar sem áhersla er lögð á skapandi og sveigjanlegar kennsluaðferðir. Í ferðinni tóku þau þátt í svokölluðu „job shadowing“, fylgdust með kennslu og fengu innsýn í pólskan skólarekstur og kennsluhætti.
Reynslan ætti að nýtast þeim vel í starfi, ekki síst í tengslum við pólska nemendur í FSN. Með betri skilningi á bakgrunni þeirra og skólamenningu eru kennararnir betur í stakk búnir til að styðja þá í námi.
Skiptinámið er liður í auknu alþjóðlegu samstarfi FSN og er stefnt að frekara samstarfi við pólska skóla á næstu árum.