Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2020

Forinnritun 10. bekkinga fer fram 9. mars til 13. apríl.

Forinnritun nemenda sem ljúka munu 10. bekk vor 2020 (fæddir 2004 eða síðar) hefst 9. mars og lýkur 12. apríl nk. .

Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast inn í umsókn á netinu. Foreldrar fá einnig sent kynningarbréf um umsóknarferlið.

Lokainnritun 10. bekkinga fer fram 6. maí til 10. júní
Nemendur í 10. bekk geta sótt um eða breytt umsóknum sínum á þessu tímabili, allt fram til miðnættis 10. júní. Einkunnir þeirra flytjast sjálfkrafa frá grunnskólanum inn í umsóknargrunninn.

https://mms.is/innritun-i-framhaldsskola