Innritun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga á haustönn 2021

Forinnritun 10. bekkinga fer fram 8. mars til 13. apríl

Forinnritun nemenda sem ljúka munu 10. bekk vor 2021 (fæddir 2005 eða síðar) hefst 8. mars og lýkur 13. apríl nk. Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast inn í umsókn á netinu. Foreldrar fá einnig sent kynningarbréf um umsóknarferlið. 

Lokainnritun 10. bekkinga fer fram 6. maí til 10. júní
Nemendur í 10. bekk geta sótt um eða breytt umsóknum sínum á þessu tímabili, allt fram til miðnættis 10. júní.  Einkunnir þeirra flytjast sjálfkrafa frá grunnskólanum inn í umsóknargrunninn. 

Innritað er á eftirfarandi námsbrautir:

  • Félags- og hugvísindabraut
  • íþróttabraut
  • Náttúru- og raunvísindabraut
  • Opin braut
  • Framhaldsskólabraut

Verið er að ljúka vinnu við nýsköpunarbraut og ef nemendur hafa áhuga á að skrá sig á þá braut, velja þeir opna braut. Þegar vinnu við brautina er lokið geta nemendur fært sig yfir á nýsköpunarbraut.

Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla