Innritun á starfsbraut 1.-28.febrúar

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er staðsettur í Grundarfirði. Myndina tók Tómas Freyr Kristjánsson
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er staðsettur í Grundarfirði. Myndina tók Tómas Freyr Kristjánsson

Opið er fyrir innritun nemenda á starfsbraut í FSN frá 1.- 28. febrúar. Umsækjendur sækja um skólavist á innritun.is   Ef upp koma spurningar eða vandamál geta umsækjendur haft samband við skólann. Umsækjendur og forráðamenn eru velkomnir í skólann til að hitta starfsfólk og skoða aðstæður.

Dagsetningar fyrir innritun haustið 2026 eru:

  • Starfsbrautir: 1. – 28. febrúar
  • Almennar umsóknir: 13. mars – 26. maí
  • Nýnemar: 24. apríl – 10. júní