Á þriðjudaginn var húsfundur í umsjónartíma. Í FSN eru haldir húsfundir reglulega . Stundum eru fundirnir haldnir sameiginlega af nemendafélagi FSN og stjórnendum skólans. Á sumum fundunum eru ákveðin málefni rædd sem snerta daglegt starfs skólans. Á fundinum á þriðjudaginn var dagskráin svona:
- Forseti nemendafélags kynnir þau atriði í félagslífinu sem eru komnir á dagskrá vetrarins.
- Umræður á meðal nemenda um félagslífið og nemendafélagið.
- Guðrún Jóna öryggisnefndarfulltrúi kynnir rýmingaráætlun.
- Loftur Árni félagslífsfulltrúi kynnir Gettu betur.
- Hermann fulltrúi í Gæðaráði leggur fram spurningar til umræðu meðal nemenda og starfsfólks fyrir hönd Gæðaráðs.
- Nemendur sem eiga eftir að svara viðhorfskönnun gera það í lok húsfundar.
Það var góð mæting á húsfundinum og Gæðaráð skólans mun vinna úr þeim punktum sem fram komu. Hér fyrir neðan má sjá þá punkta sem voru lagðir fram til umræðu og það er gaman að segja frá því að einn af punktunum sem komu fram voru:
Flottur skóli, þægilegt að fá að búa heima, viljum ekki missa hann.
Nálægðin við kennarana er mjög góð, þægilegt að þekkja alla.
Hvernig getum við mótað félagslífið saman þannig að sem flestir upplifi að þeir eigi rödd? Viljið þið sjá meira af smærri viðburðum eða dagskrá á skólatíma?
Hvernig getum við nýtt gervigreind sem hjálpartæki í náminu án þess að missa út sjálfstæði í vinnubrögðum?
Samskipti milli nemenda og kennara eru einn mesti styrkleiki FSN. Hvað getum við (nemendur og starfsfólk) gert í sameiningu til þess að tryggja góðan vinnufrið í opnu rýmunum og skapa enn betra vinnuumhverfi?