Skólaakstur fellur niður á mánudag - Kennsla verður á TEAMS

Samkvæmt upplýsingum á vef Almannavarna hafa verið gefnar út appelsínugular veður viðvaranir fyrir allt landið. þessar viðvaranir byrja að taka gildi á miðnætti á mánudag og gilda fram yfir hádegi á mánudag. Það er því ekkert ferðaveður og því munum við kenna á TEAMS á morgun. Farið varlega.