Höfðingjaleg gjöf

Nýju stólarnir ásamt hluta af nemendum.
Nýju stólarnir ásamt hluta af nemendum.

Á útskriftarhátíð skólans var starfsbraut skólans gefin höfðingleg gjöf. Hjónin Runólfur Guðmundsson og Edda Kristjánsdóttir færðu starfsbrautinni að gjöf  fimmhundruð þúsund krónur.

Hluti af gjöfinni var notað til að kaupa 9 stóla með hjólum,  og eru nemendurnir alsæl með þá og þakka innilega fyrir þessa gjöf.