Það er gleðiefni að segja frá því að nú hafa nemendur FSN möguleika á því að fá viðtal við hjúkrunarfræðing. HVE hefur samið við Viktoríu Sif Viðarsdóttur hjúkrunarfræðing sem verður hér í hlutastarfi hjá FSN en Viktoría starfar á Heilsugæslunni í Snæfellsbæ. Það er enn meira gleðiefni að hún Viktoría Sif var nemandi hér við FSN og útskrifaðist sem stúdent í desember 2013.
Hjúkrunarfræðingurinn mun hafa aðsetur í Tjörn.
Upplýsingar um viðtalstíma hjá skólahjúkrunarfræðing og hvernig nemendur geta pantað hjá henni tíma eru á heimasíðu skólans: Hjúkrunarfræðingur.
Fimmtudagurinn 1.október er fyrsti dagur Viktoríu hjúkrunarfræðings í FSN.