Haustfrí og matsdagar

Haustfrí er í Fjölbrautaskóla Snæfellingar miðvikudaginn 23. september og fimmtudaginn 24. september. Matsdagar kennara eru föstudaginn 25. september og mánudaginn 28. september. Engin kennsla er á þessum dögum, starfsfólk skólans er að fara til Póllands í skólaheimsóknir og mun meðal annars heimsækja Menntamálastofnunina í Gdansk þar sem starfsfólk fær fræðslu um pólskt skólakerfi, gæðamat, stuðning við kennara o.fl. Kennsla hefst svo aftur þriðjudaginn 29. september, þá birtist einnig fyrsta umsögn nemenda. Foreldrar/foráðamenn nemenda yngir en 18 ára geta lesið umsagnir um árangur og ástundum hjá sínu barni.