Háskóladagurinn 4. mars

Háskóladagurinn 2023 verður haldinn 4. mars nk. milli kl. 12:00 og 15:00. Allir háskólar landsins munu þá kynna starfsemi sína.  Dagurinn fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni. 

Við minnum á vefinn okkar www.haskoladagurinn.is þar er öflug leitarvél þar sem nemendur geta fundið draumanámið og allar upplýsingar um það.