Rut Rúnarsdóttir flutti erindi fyrir nemendur og starfsfólk um sjálfsvíg og forvarnir gegn sjálfsvígum.
Fimmtudaginn 10. september, á alþjóðlegum baráttudegi sjálfsvígsforvarna, var haldinn gulur dagur í FSN í tengslum við átakið Gulur september. Liturinn gulur er alþjóðlegur táknmynd sjálfsvígsforvarna og voru nemendur og starfsfólk hvattir til að mæta í gulu til að sýna málefninu stuðning.
Nemendur og starfsfólk komu saman í matsal skólans þar sem Rut Rúnarsdóttir flutti erindi um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir, þar sem kærleiki, aðgát og umhyggja voru höfð að leiðarljósi.
Nýr skólahjúkrunarfræðingur skólans var einnig kynntur til leiks við þetta tækifæri, en FSN hefur fengið hana Viktoríu Sif Viðarsdóttur sem skólahjúkrunarfræðing. Hún Viktoría Sif stundaði nám hér í FSN og útskrifaðist í desember 2013 og við erum stolt af því að nemendur okkar fái að njóta hennar starfskrafta.
Dagskránni lauk með skemmtilegu „Hver gerði hvað Bingói“ sem sló í gegn og skapaði góða stemningu á þessum mikilvæga vitundarvakningardegi.
Myndaalbúm frá deginum.