Gjöf frá Lionsklúbbi Stykkishólms

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari tekur við gjafbréfi frá Sumarliða Ásgeirssyni Lionsmanni í…
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari tekur við gjafbréfi frá Sumarliða Ásgeirssyni Lionsmanni í Stykkishólmi.

Á útskriftarhátíð FSN föstudaginn 16.desember tók skólameistari á móti gjöf frá Lionsklúbbi Stykkishólms upp á 600 þúsund krónur. Lionsfélagar vonast til að þessi gjöf verði nýtt til kaupa á tækjum sem nýtast við kennslu í skólanum. Skólinn þakkar fyrir rausnarlega gjöf til skólans.