Héðinn Unnsteinn flutti erindi um geðrækt í boði Geðhjálpar
Geðhjálp er með verkefni í gangi þar sem framhaldsskólum er boðið upp á fría 30-60 mínútna geðfræðslu fyrir nemendur. Héðinn Unnsteinsson flutti fyrirlestur hér í FSN 22.apríl og ræddi lífsorðin 14 og sagði sögur, ásamt því að velta því fyrir sér hvað skiptir í raun máli. Lífsorðin eru byggð á persónulegri reynslu en rannsóknir staðfesta gildi þeirra.
Lífsorðin 14 eru sprottinn úr hugarheimi Héðins Unnsteinssonar, sérfræðings í stefnumótun og kunnáttumanns um geðheilbrigði og fyrrum sérfræðings í þeim málum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) og heilbrigðisráðuneytinu.
Héðinn hefur unnið lengi að því að finna leið til að tala um geðheilbrigði án þess að það verði þungt eða fjarlægt. Leið til að opna samtal sem er hlýtt, hreinskilið og mannlegt. Úr því varð fyrirlesturinn Vertu Úlfur – Wargus Esto. Tilbrigði við geðheilbrigði. 30–60 mínútur sem fjalla um innri styrk, samstöðu og þá fallegu staðreynd að við erum öll að gera okkar besta.
Varðandi geðfræðsluna:
Góð geðheilsa er undirstaða lífsgæða og lífsánægju. Geðheilbrigði er ekki aðeins það að vera laus við geðraskanir heldur ástand þar sem okkur líður vel, getum nýtt hæfileika okkar til fulls, tekist farsællega á við verkefni daglegs lífs og átt uppbyggileg og ánægjuleg samskipti við fólkið í kringum okkur.
Mikilvægt er að hlúa að eigin geðheilsu með því að gæta að jafnvægi í lífinu - nærast vel, stunda daglega hreyfingu og útiveru, hvílast nægilega og gefa sér tíma til þess að njóta tilverunnar með þeim sem manni þykir vænt um.
Með því að tileinka þér að hugsa jákvætt um lífið og tilveruna og hlúa markvisst að því sem styrkir geðheilsu þá ertu að stunda geðrækt.