Fundur fyrir foreldra/forráðamenn

Mánudaginn 26.ágúst klukkan 18:00

Fundurinn er haldinn í húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

Fundur fyrir foreldra Framhaldsdeildar á Patreksfirði verður boðaður síðar.

Dagskrá:

  • Almennt um FSN
  • Kynning á námsbrautum                                            
  • Kennsluhættir-Námsmat            
  • Kosning í foreldraráð FSN           
  • Kynning á stoðþjónustu og INNU
  • Mötuneyti og skólaakstur
  • Umsjónarkennarar nýnema

 

Við hvetjum foreldra og forráðamenn til þess að koma á fundinn og fræðast um skólastarfið, ræða námið og velferð nemenda.  Við teljum mikilvægt að samstarf foreldra og skóla sé gott og öflugt.  Rannsóknir og reynslan sýna að virkt samstarf foreldra og skóla stuðlar að jákvæðum áhrifum á skólastarfi, auðveldar foreldrum að styðja við börn sín og dregur úr hættu á brottfalli úr skóla.   Allir foreldrar/forráðamenn eru velkomnir en foreldrar nýnema eru sérstaklega hvattir til að koma á fundinn.

 

Skólameistari

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir