Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari gerði grein fyrir verkefninu um innleiðingu gervigreindar í skólastarfi FSN en skólinn fékk þrjár milljónir í styrk úr Sprotasjóði til að vinna að innleiðingunni.
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla úthlutaði 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026 þann 11.júní síðastliðinn. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu og veitti Hrafnhildur Hallvarðsdóttir styrknum viðtöku.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. Hér er tengill á frétt hjá stjórnarráðinu.
Í umsókninni segir að í FSN verði til faglegt lærdómssamfélag í kringum vinnu við innleiðingu gervigreindar. Unnið verður að því í anda lærdómssamfélags að styrkja kennara og hæfni þeirra til að þróa nýjar nálganir í skapandi starfi með nýtingu gervigreindar í öllu skólastarfi.
Markmiðið er að nýta gervigreind til að bæta kennslu, nám og stjórnun innan skólans í samræmi við stefnu skólans um framsækni, sjálfstæði og nýsköpun. Markmiðið er einnig að í FSN verði til faglegt lærdómssamfélag í kringum vinnu við innleiðingu gervigreindar í skólastarfi. Unnið verður að því í anda lærdómssamfélags að styrkja kennara og hæfni þeirra til að nýta gervigreind í kennslu og öllu skólastarfi. Stefnt er að því að þróa nám sem byggist á kennslufræði nýsköpunar og frumkvöðlafræði með áherslu á nýtingu gervigreindar. Einnig er markmiðið að bjóða áhugavert nám við hæfi sem flestra í nemendahópnum og að minnka brotthvarf við skólann. Einng er stefnt að því að virkja kennara til að þróa nýjar nálganir í skapandi starfi með tilkomu gervigreindar.
Á vorönn var skipaður starfshópur til að vinna að innleiðingu gervigreindar í FSN þegar umsókn var send inn til Sprotasjóðs. Verkefnastjóri, Gunnlaugur Smárason stýrði vinnu hópsins. Aðrir í starfshópnum eru; Loftur Árni Björgvinsson, Hermann Hermannsson, Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir, Kristín Rós Jóhannesdóttir, Birta Antonsdóttir, Gísli Pálsson og Þiðrik Örn Viðarsson.