FSN fylgir viðmiðum HÍ um gervigreind

 

Í ljósi þeirra breytinga sem átt hafa sér stað með tilkomu framfara í notkun gervigreindar hefur það verið ákveðið að Fjölbrautaskóli Snæfellinga fylgi viðmiðum Háskóla Íslands um gervigreind. Þau viðmið má kynna sér á upplýsingasíðu HÍ um gervigreind: Gervigreind | Nemandi (hi.is)

Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér þessi viðmið og tileinka sér þau við notkun gervigreindar í námi. Kennarar munu beita þessum viðmiðum við yfirferð á verkefnum og hálpa nemendum að átta sig á því hvernig er best að nálgast gervigreindina sem hjálpartæki.

Tengill á síðu HÍ verður jafnframt aðgengilegur hér á heimasíðu FSN: Viðmið um notkun gervigreindar | Fjölbrautaskóli Snæfellinga (fsn.is).