Framhaldsskólum verður lokað næstu fjórar vikur og kennsla fer fram í fjarkennslu eins og hægt er. Nánari upplýsingar verða sendar síðar í dag til nemenda, starfsfólks, foreldra og aðstandenda.

Heilbrigðisráðherra tilkynnti í morgun þá ákvörðun að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur tímabundið í fjórar vikur til að hægja á útbreiðslu COVID-19. Samkomubannið gildir í fjórar vikur, frá og með mánudeginum 16. mars kl. 00:01 til og með mánudagsins 13. apríl kl. 00:01.

Samkomubannið gildir um viðburði þar sem fleiri en hundrað manns koma saman og ná takmarkanirnar til landsins alls. Auk þess þarf að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum á öllum viðburðum.

Framhaldsskólum og háskólum verður lokað og kennsla fer fram í fjarkennslu eins og hægt er.

Nánari upplýsingar verða sendar síðar í dag til nemenda, starfsfólks, foreldra og aðstandenda.

https://www.covid.is/flokkar/hvad-thydir-samkomubann