Árið 2007 var gerður samningur á milli Fjölbrautaskóla Snæfellinga og sveitarfélaganna á sunnanverðum Vestfjörðum, þ.e. Tálknafjarðarhrepps og Patreksfjarðar um rekstur á Framhaldsdeild á Patreksfirði. Ýmsar ástæður eru fyrir því að ákveðið hefur verið að hætta þessum rekstri. Fyrst er að nefna að nemendum á framhaldsskólaaldri á sunnanverðum Vestfjörðum hefur fækkað mjög undanfarin á og á sama tíma hefur stærri hópur valið að fara í burtu til að sækja nám. Stærsta ástæðan er samt sú ánægjulega staðreynd að samgöngur á Vestfjörðum hafa batnað þannig að nemendur eiga nú auðveldara en áður að sækja nám á Ísafirði. Okkur í FSN þykir leitt að þessum kafla í sögu skólans skuli vera lokið en um leið þykir okkur ánægjulegt nemendanna vegna og fyrir samfélagið í heild, að Vesturbyggð hefur ákveðið að hefja samstarf við Menntaskólann á Ísafirði og munu nemendur af svæðinu geta sótt nám þangað, þökk sé bættum samgöngum.