Félagsstarf Nemendafélags FSN á tímum Covid

Myndina tók Sumarliði Ásgeirsson
Myndina tók Sumarliði Ásgeirsson

Undir tunglskinsbjörtum himni með tindrandi stjörnum og norðurljósum stóð Nemendafélag FSN fyrir bílabíói. Bílabíóið var að Skildi í Helgafellssveit fimmtudagskvöldið, 28. október. Veggur félagsheimilisins að Skildi fékk hlutverk sýningartjalds en myndinni var varpað upp á vegginn. Nemendur komu á bílum og hljóðrás kvikmyndarinnar var útvarpað þannig að hægt var að stilla útvarp bílanna inn á hana. Þetta gekk allt ljómandi vel og er nokkuð víst að nemendafélag FSN mun halda fleiri bílabíó á þessu skólaári en vegna aðstæðna hefur ekki verið mikið um skemmtanir fyrir nemendur