Alexandra Björg tók þátt í Evrópumóti Smáþjóða í U18 aldursflokki í Dublin á dögunum. Stelpurnar spiluðu mjög vel á mótinu og kepptu úrslitaleik á móti Færeyjum eftir að stelpurnar höfðu unnið alla sína leiki á mótinu. Ísland vann leikinn 3-1 og lönduðu þær gulli á mótinu og komast þær því áfram á EM í júlí í sumar.
Við óskum Alexöndru Björgu og stelpunum í landsliðinu til hamingju með árangurinn og hlökkum til með að fylgjast með þeim á EM í sumar.
Alexandra er nemandi hér hjá okkur í FSN og óskum við henni innilega til hamingju með þennan árangur og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.