Dagur íslenskrar náttúru

Þann 17. september tóku 32 galvaskir nýnemar ásamt Gísla og Hermanni kennurum í lýðheilsu þátt í gróðursetningargleði á lóð Leikskólans Sólvalla í Grundarfirði. Tilefnið var dagur íslenskrar náttúru sem haldin er árlegur 16. september en vegna veðurs var gróðursetningunni frestað um einn dag. Yfirskrift dagsins var sköpum skjól, fegurð og líffræðilegan fjölbreytileika saman. Eins og sjá má þá höfðu nemendur Fjölbrautaskólans mjög gaman af þessu verkefni.