Brautskráning 2023

19 nemendur voru útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 26.maí. Hér er hópurinn ásamt Hrafnhild…
19 nemendur voru útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 26.maí. Hér er hópurinn ásamt Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara og Sólrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara.

Föstudaginn 26.maí voru 19 nemendur útskrifaðir  sem stúdentar frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.  

Fimm nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, sex nemendur luku námi á náttúru og raunvísindabraut, þrír  nemendur luku námi á opinni braut, einn nemandi lauk viðbótarnámi til stúdentsprófs og tveir nemendur luku námi af nýsköpunar- og frumkvöðlabraut en þetta er í fyrsta skipti sem  nemendur eru útskrifaðir af þessari braut. Með þessum hóp hefur skólinn útskrifað 560 nemendur frá fyrstu útskriftinni sem var í desember 2005.